Iceland Express flýgur fyrsta flug til Gdansk.Föstudaginn 4. júní bættist enn einn áfangastaðurinn formlega í leiðakerfið hjá okkur þegar fyrsta beina flugið frá Keflavík til Gdansk var flogið.
Viðtökurnar við Póllandsflugum Iceland Express hafa verið aldeilis glimrandi og í sumar verða áfangastaðirnir okkar í Póllandi þrír talsins, Varsjá, Kraká og Gdansk.
Á myndinni má sjá þegar flugvél Iceland Express fékk algjörlega ókeypis steypibað þegar hún renndi upp að flugstöðinni í Gdansk í jómfrúarfluginu.
En sem sagt, alla föstudaga í sumar, til 31. ágúst, ætlum við að heilsa upp á nýju vini okkar í Gdansk og þú ert velkomin(n) með ef þú vilt.
