Fyrsta flug Iceland Express til New York farið í loftið.Það sveif amerísk stemning yfir vötnum í Leifsstöð á þriðjudaginn var, og ekki að ástæðulausu, þar sem fyrsta flug Iceland Express til Bandaríkjanna fór þá í loftið.
Þéttskipuð vélin var á beinni leið til Newark flugvallar í New York og þannig ætlum við að hafa það fjóra daga í viku út sumarið.
Í tilefni af fyrstu brottförinni voru allir farþegar á leið til New York leystir út með stóru epli — hollt og gómsætt nesti fyrir flugið yfir hafið. Svo mætti Frelsistyttan líka á svæðið, enda alltaf til í gott geim.
En þetta er ekki allt.
New York flugið markar upphafið að sumaráætluninni okkar og meðal annarra nýrra áfangastaða má nefna Íslendinganýlenduna Winnipeg í Kanada, Mílanó á Ítalíu og Gdansk í Póllandi. Sem sagt eitthvað fyrir alla.
Allir um borð!
