Iceland Express deildinni í körfuknattleik karla lokið — Snæfell Íslandsmeistari.Bloggið má til með að óska öllum Hólmurum, nær og fjær, til hamingju með Íslandsmeistaratitil Snæfells í körfuknattleik karla.
Heljarmennin úr Hólminum tryggðu sér titilinn í gærkvöldi með stórsigri á liði Keflavíkur, 105-69, og það á heimavelli Keflvíkinga, eitthvað sem fá lið gætu leikið eftir.
Með þessu er Snæfell búið að geirnegla stöðu sína sem besta lið landsins þetta árið, enda erfitt að halda öðru fram um lið sem er bæði bikarmeistari og Íslandsmeistari í senn.
Þar með er tímabilinu lokið í Iceland Express deildinni í körfubolta. Snæfellspiltar og KR-stúlkur geta baðað sig dýrðarljóma meistaranna í allt sumar, en næsta haust byrjar baráttan aftur og við verðum að sjálfsögðu áfram á hliðarlínunni. Eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman þá.
