Ég á annað flug rétt á eftir eða undan fluginu með Iceland Express. Hversu miklum tíma þarf ég að gera ráð fyrir til að ná seinna fluginu?
Af því að flug með Iceland Express eru ekki í tengslum við nein önnur flugfélög þarftu að líta á framhaldsflug þitt með öðrum flugfélögum sem eina flugið á ferðalagi þínu.
Þetta þýðir að þegar þú flýgur með Iceland Express og heldur áfram með — eða kemur úr — flugi með öðru flugfélagi, þarftu alltaf að sækja farangur þinn, fara í gegnum vegabréfaskoðun (eingöngu í Bretlandi) og tollskoðun, og innrita þig aftur.
Þegar þú bókar framhaldsflug, hvort sem það er með Iceland Express eða öðru flugfélagi, mælum við með að þú gerir ráð fyrir að minnsta kosti þremur klukkustundum frá komu fyrra flugsins til brottfarar þess síðara. Líta verður á tvær klukkustundir sem algert lágmark.
Við mælum með því að þú lesir þér vandlega til um innritunartíma og aðra skilmála allra flugfélaga sem þú notar á ferðalagi þínu. Við tökum enga ábyrgð á flugi með öðrum flugfélögum en Iceland Express, og við ábyrgjumst ekki að flug þitt með okkur komi í tæka tíð fyrir þig til að ná framhaldsflugi með öðru flugfélagi.




