Deutsch
Svenska
Dansk
English
Íslenska
 

Ég hélt ég hefði bókað flug en ég hef ekki enn fengið senda bókunarstaðfestingu í tölvupósti. Hvað er að?

Það eru nokkrir möguleikar:

1. Ertu viss um að þú hafir klárað bókunina þína? Reynslan sýnir okkur að sumir af viðskiptavinum okkar halda ekki áfram með bókunina sína þegar þeir eru búnir að skrá inn greiðslukortaupplýsingar á skrefi 4. Þannig komast þeir ekki á skref 5 þar sem bókunarferlinu lýkur með því að þeir fá bókunarnúmer.

2. Skráðirðu rétt tölvupóstfang? Eða, ef þú notar mörg tölvupóstföng, notaðirðu póstfang sem þú notar sjaldan og hefur ekki skoðað ennþá?

3. Hugsanleg erum við að glíma við tímabundna tæknilega erfiðleika með bókunarkerfið okkar.

Ef þú hefur útilokað fyrstu tvo möguleikana og telur að sökin liggi hjá okkur, hringdu þá í þjónustuverið okkar eða fylltu út þetta form og lýstu vandamálinu sem um er að ræða.