Hvenær er innritun í flug Iceland Express?
Keflavík og aðrir flugvellir í Evrópu
Innritunarborð okkar opna að minnsta kosti tveimur klukkustundum fyrir brottför á öllum flugvöllum okkar. Við mælum með því að farþegar innriti sig snemma til að losna við biðraðir og hafa úr fleiri sætum að velja.
Innritun lýkur nákvæmlega 45 mínútum fyrir brottför (60 mínútum fyrir flug til/frá New York Newark flugvelli). Ef þú innritar þig seint áttu á hættu að missa af fluginu þínu. Jafnvel þótt við innritum farþega eru þeir sjálfir ábyrgir fyrir því að koma að brottfararhliði í tæka tíð fyrir brottför.
New York - Newark
Við mælum með að þú sért á flugvellinum a.m.k. tveimur og hálfum klukkustundum fyrir brottför.
Innritunarborð okkar opna a.m.k. þremur klukkustundum fyrir brottför. Við mælum með að þú innritir þig snemma til að forðast biðraðir.
Innritun lýkur nákvæmlega 60 mínútum fyrir flug til/frá New York Newark flugvelli. Ef þú innritar þig seint áttu á hættu að missa af fluginu þínu. Jafnvel þótt við innritum farþega eru þeir sjálfir ábyrgir fyrir því að koma að brottfararhliði í tæka tíð fyrir brottför.
Eftir að flug er farið og ef miða hefur ekki verið breytt fyrir þann tíma, telst miðinn ógildur.




