Deutsch
Svenska
Dansk
English
Íslenska
 

Hvað er APIS?

Þrjú lönd innan leiðakerfis Iceland Express krefjast ákveðinna farþegaupplýsinga fyrir allar brottfarir til og frá landinu — Bandaríkin, Kanada og Bretland. Þessar upplýsingar eru jafnan kallaðar APIS eða API (Advance Passenger Information System).

Öllum flutningsaðilum, þar á meðal Iceland Express, er skylt að senda þessar upplýsingar til þarlendra stjórnvalda fyrir brottför. Þetta þýðir að farþegar Iceland Express sem eru á leið til þessara landa þurfa að fylla út þessar upplýsingar áður en haldið er af stað, helst ekki síðar en 72 klst. fyrir áætlaða brottför. Þetta er sérstaklega mikilvægt til að forðast óþægindi og seinkanir á flugvellinum fyrir brottför.

Þær upplýsingar sem gefa þarf upp eru:

- Kyn
- Fæðingardagur og ár
- Þjóðerni
- Land
- Skilríki (yfirleitt vegabréf)
- Númer á skilríki (gildistími og land þar sem vegabréf var gefið út)
- Dvalarstaður í Bandaríkjunum

Farþegum gefst kostur á að fylla út þessar upplýsingar um leið og flugið er bókað, en einnig er hægt að skila þeim inn síðar með því að fara inn í viðkomandi bókun og skrá inn umbeðnar upplýsingar. Skoða bókun 

SJÁ EINNIG:
- Reglur um komu til Bandaríkjanna 
- Hvernig sæki ég um ferðaheimild til Bandaríkjanna