Deutsch
Svenska
Dansk
English
Íslenska
 

Get ég flutt skotvopn vegna sportveiðinotkunar með Iceland Express?

Já, en allur slíkur flutningur er háður ströngum reglum.

- Farþegi þarf að hafa afrit af byssuleyfinu meðferðis í flugið og vera reiðubúinn að framvísa því við innritun ef þörf krefur.
- Skotvopnið má ekki vera þyngra en 5 kg. Það verður að vera óhlaðið og óhæft til notkunar meðan á flutningi stendur.
- Ef skotfæri eru einnig flutt meðferðis þurfa þau að vera í aðskildri tösku. Það ílát þarf að vera högghelt og úr hörðu efni, s.s. timbri, stáli eða trefjaplasti. Ílátið þarf jafnframt að vera vel merkt í samræmi við innihaldið.
- Skotvopn og skotfæri má eingöngu flytja í farangursrými.

Ef þessi skilyrði eru ekki uppfyllt að fullu, áskilur Iceland Express sér allan rétt til að hafna flutningi á farangri af þessu tagi.