Markaðs- og sölufulltrúi í Evrópu
Iceland Express auglýsir eftir markaðs- og sölufulltrúa fyrir meginland Evrópu.
Starfið felur í sér að:
• Þjónusta samstarfsaðila Iceland Express í Mið–Evrópu.
• Afla nýrra samstarfsaðila á svæðinu.
• Fylgjast vel með nýjum sölutækifærum og bregðast við þeim.
• Taka þátt í almannatengslastarfi Iceland Express í Mið–Evrópu.Starfsmaðurinn þarf að geta haft aðsetur á skrifstofu Iceland Express í Reykjavík eða miðsvæðis á meginlandi Evrópu.
Hæfniskröfur
• Þarf að hafa góð tök á talaðri og ritaðri ensku og þýsku.
• Háskólamenntun á sviði viðskipta og/eða ferðaþjónustu æskileg.
• Góð þekking á íslenskri ferðaþjónustu.
• Reynsla af samstarfi við erlendar ferðaskrifstofur og smásöluaðila í ferðaþjónustu æskileg.
• Rík þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknir sendist á netfangið job@icelandexpress.is fyrir 23. júlí nk.