Þegar þú flýgur til Bandaríkjanna eru í gildi reglur sem skuldbinda flugfélög til að safna ítarlegri upplýsingum um farþega.
BANDARÍKJAFLUG EINGÖNGU: Farþegar sem eru á leið til Bandaríkjanna, verða að sækja um rafræna ferðaheimild til að verða hleypt inn í landið (gildir um íslenska ríkisborgara).
Á ÞESSARI SÍÐU:
Ísland er eitt þeirra ríkja sem fellur undir svokallað Visa Waiver Program (VWP), og því geta íslenskir ríkisborgarar ferðast til og dvalið í Bandaríkjunum í allt að 90 daga án þess að sækja um sérstaka vegabréfsáritun.
- Nánari upplýsingar um VWP á vef US State Department
TIL ÞESS AÐ GETA FERÐAST TIL BANDARÍKJANNA SKV. ÞESSARI UNDANÞÁGU, ÞARF AÐ UPPFYLLA EFTIRFARANDI SKILYRÐI:
- Vera ríkisborgari í landi sem á aðild að samkomulaginu. Sjá lista yfir aðildarlönd hér
- Hafa meðferðis gilt og tölvulesanlegt vegabréf. ENGAR UNDANTEKNINGAR ERU GERÐAR FRÁ ÞESSARI REGLU. Nánari upplýsingar um tölvulesanleg vegabréf hér.
- Eiga bókað flug til baka frá Bandaríkjunum.
- Óska eftir leyfi til tímabundinnar dvalar (Electronic System for Travel Authorisation), í allt að 90 dagar eða minna ef tilefnið er viðskiptalegt eða skemmtiferð. Meiri upplýsingar um umsókn á leyfi til tímabundinnar dvalar hér.
Ef umsókn þinni um ferðaheimild til Bandaríkjanna er hafnað, þarftu annað hvort að hafa samband við sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi, eða leita nánari upplýsinga hér.
ALLIR FARÞEGAR Á LEIÐ TIL BANDARÍKJANNA SEM EKKI ERU BANDARÍSKIR RÍKISBORGARAR, VERÐA AÐ HAFA ANNAÐ HVORT GILDA VEGABRÉFSÁRITUN EÐA RAFRÆNA FERÐAHEIMILD (ESTA).
Farþegar frá ríkjum sem eru aðilar að Visa Wiaver Program (VWP), geta fengið landvistarleyfi í Bandaríkjunum með því að sækja um rafræna ferðaheimild (ESTA).
Öllum farþegum á leið til Bandaríkjanna sem ferðast undir VWP er skylt að framvísa ferðaheimildinni við vegabréfseftirlit í Bandaríkjunum og getur brot á þessari reglu varðað við sekt, allt að $3.300 fyrir hvern farþega.
Allir farþegar sem hyggjast dveljast lengur en 90 daga í Bandríkjunum verða að sækja um vegabréfsáritun til landsins.
Ef þú ert á leið til Bandaríkjanna og ert með undanþágu frá vegabréfsárituun (Visa Waiver Program), gera bandarísk yfirvöld þá kröfu að þú sækir um rafræna ferðaheimild (Electronic System for Travel Authorisation eða ESTA). Sótt er um þessa ferðaheimild á vefnum.
Farþegi ber alla ábyrgð á því að sækja tímanlega um ferðaheimildina. Æskilegt er að sækja um sem fyrst eftir að búið er að ganga frá bókun og minnst 72 tímum fyrir brottför. Reynt er að afgreiða allar umsóknir sem berast með minni fyrirvara, en ekki er þó hægt að ábyrgjast afgreiðslu á þeim tímanlega.
Athugið að frá og með 8. september 2010 þurfa allir sem sækja um ESTA heimild að greiða gjald sem nemur u.þ.b. 1.600 krónum (US$ 14).
Vinsamlega athugið að allir þeir sem bera nöfn með íslenskum sérstöfum (Á, Í, Æ, Ö o.sv.frv) verða að gæta þess að skrifa nafn sitt í ESTA-formið á sama hátt og það birtist í tölvurönd á vegabréfi viðkomandi. Sjá dæmi (opnast í nýjum glugga)
Þegar leyfið er veitt gildir það í tvö ár. Ef farþegi ferðast aftur til Bandaríkjanna innan þess tíma, þarf aðeins að uppfæra ferðaupplýsingar fyrir hverja tiltekna ferð, þ.e. brottfararstað, flugnúmer og heimilisfang í Bandaríkjunum.
Tölvulesanleg vegabréf (Machine Readable Passport eða MRP) eru vegabréf með stafrænni mynd og innbyggðri örflögu sem hafa að geyma upplýsingar um handhafa vegabréfsins.
Allir farþegar á leið til Bandaríkjanna þurfa að hafa annað hvort tölvulesanlegt vegabréf (aðeins þeir sem geta ferðast undir Visa Waiver Program), eða gilda vegabréfsáritun.
Ef þú fellur undir Visa Waiver Program, en hefur aðeins bráðabirgða- eða neyðarvegabréf sem uppfyllir ekki fyrrgreind skilyrði, þarftu að sækja um sérstaka vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Þeir farþegar sem ferðast til Bandaríkjanna á undanþágu frá vegabréfsáritun án þess að hafa meðferðis tölvulesanlegt vegabréf, geta búist við US$ 3.300 sekt, í samræmi við bandaríska innflytjendalöggjöf.
Athugið að börn geta EKKI ferðast á vegabréfi foreldra sinna.
ATH! GILDIR AÐEINS FYRIR FARÞEGA Á LEIÐ TIL BANDARÍKJANNA, KANADA OG BRETLANDS
APIS (Advance Passenger Information System) eru upplýsingar sem stjórnvöld krefjast af öllum sem fljúga til Bandaríkjanna, Kanada eða Bretlands. Öllum flutningsaðilum, þar á meðal Iceland Express, er skylt að senda þessar upplýsingar til stjórnvalda fyrir brottför.
Þetta þýðir að farþegar Iceland Express sem eru á leið til þessara landa þurfa að fylla út þessar upplýsingar áður en haldið er af stað. Þetta er sérstaklega mikilvægt til að forðast óþægindi og seinkanir á flugvellinum fyrir brottför.
Þær upplýsingar sem gefa þarf upp eru:
- Kyn
- Fæðingardagur og ár
- Þjóðerni
- Land
- Skilríki (yfirleitt vegabréf)
- Númer á skilríki (gildistími og land þar sem vegabréf var gefið út)
- Dvalarstaður í Bandaríkjunum
Farþegum gefst kostur á að fylla út þessar upplýsingar um leið og flugið er bókað, en einnig er hægt að skila þeim inn síðar með því að fara inn í viðkomandi bókun og skrá inn umbeðnar upplýsingar.
Innritaður farangur: Hver farþegi má innrita, sér að kostnaðarlausu, eina tösku með að hámarki 20 kg. af farangri. Athugið að ekki er heimilt að færa farangursheimild á milli bókana. Hægt er að kaupa heimild fyrir auka tösku eða töskur, samkvæmt verðskrá. Sjá verð fyrir auka töskuheimild (opnast í nýjum glugga). Við bendum á að það er hagkvæmast að bóka þessa heimild um leið og flugið er bókað, þar sem þá býðst allt að 20% afsláttur af uppgefnu verði.
Yfirvigt: Ef einhver taska er þyngri en sem nemur 20 kg., er innheimt sérstakt yfirvigtargjald fyrir þá tösku. Gjaldið er ein upphæð óháð umframþyngd. Sjá gjald fyrir yfirvigt (opnast í nýjum glugga). Hámarksþyngd á eina tösku getur þó mest verið 32 kg. og áskiljum okkur við rétt til að hafna flutningi á töskum sem eru umfram þá þyngd.
Handfarangur: Þú mátt taka með þér um borð eina einingu handfarangurs, ekki stærri en 55x35x25cm. Að auki máttu taka með þér handtösku, frakka eða kápu, fartölvu, myndavél og poka með vörum úr fríhöfn. Heildarþyngd handfarangurs, að öllu þessu meðtöldu, má ekki vera umfram 10 kg. Athugaðu að sérstakar reglur gilda um vökva í handfarangri.
Ungabörn: Börn undir 2ja ára aldri fá ekki farangursheimild, nema þegar sæti hefur verið bókað fyrir þau.
