Gardemoenflugvöllur í Ósló var opnaður árið 1998 og er nú þegar orðinn annar fjölsóttasti flugvöllur Norðurlanda með yfir 17 milljónir farþega sem fara um völlinn árlega.
Flugvöllurinn er staðsettur 48 km norðan við Ósló og tengist borginni með hraðlestakerfi.
Innritun í flug Iceland Express:
Nánari upplýsingar síðar.
SAS flugvallarrútan fer til miðborgar Óslóar með nokkrum stoppum á leiðinni. Ferðin tekur um 40 mínútur og þessi leið gengur á 20 mínútna fresti frá 04.05 á morgnanna til 21.40 á kvöldin. Aukaferðir eru eftir það í tengslum við seinni flug.
Þú mátt taka með þér allt að 20 kg af innrituðum farangri (30 kg fyrir öll flug til/frá Bandaríkjunum og Kanada) og 10 kg af handfarangri. Kílóið af yfirvigt kostar 1.500 kr. Sérstakar reglur eru um flutning á sérfarangri eins og golfsettum, reiðhjólum og fleira.